Lúðrasveit Stykkishólms
Lúðrasveit Stykkishólms var stofnuð á sumardaginn fyrsta árið 1944. Fyrsti stjórnandi hennar var Víkingur Jóhannsson. Víkingur gerði meira en að stjórna lúðrasveitinni, hann kenndi flestum hljóðfærin líka, því í upphafi kunnu fáir að spila.
Þegar lúðrasveitin var búin að starfa í 20 ár stóðu félagar hennar að því að stofnaður var í bænum tónlistarskóli, Tónlistarskóli Stykkishólms. Það var árið 1964. Hann er því meðal elstu tónlistarskóla landsins. Í sveitinni voru í upphafi eingöngu fullorðnir hljóðfæraleikarar, en með tímanum fóru að koma unglingar inn í sveitina og smám saman þróaðist sveitin í það að verða skólalúðrasveit Tónlistarskóla Stykkishólms.
Í dag starfar lúðasveitin í nokkrum deildum;
Litla Lúðró
Byrjendasveitin er kölluð „Litla Lúðró“. Í henni eru þeir sem eru komnir nokkuð af stað á hljóðfærin sín. Stjórnandi er Anastasia Kiakhidi.
Milli Lúðró
Í "Gemlingasveitinni" (Milli Lúðró) eru hljóðfæraleikarar sem eru komnir vel á veg í sínu hljóðfæranámi. Í sveitinni eru í vetur 10 nemendur Tónlistarskólans. Stjórnandi er Anastasia Kiakhidi
Stóra Lúðró
Í „Stóru Lúðró“ eru þeir sem náð hafa lágmarksleikni á hljóðfærin. Þar eru nú, auk hefðbundinna lúðrasveitarhljóðfæra, píanó, rafgítar og rafbassi. Stjórnandi er Martin Markvoll.
Trommusveitin
Slagverksleikararnir æfa saman við ákveðin tækifæri í sérstakri trommusveit – eða „drumline“. Hana skipa snerlar, cymbalar, tritoms og bassatrommur. Stjórnandi er Hafþór S. Guðmundsson.
Víkingasveitin
Lengra komnir nemendur skólans æfa stundum saman í sérstakri sveit sem nefnd er eftir stofnanda lúðrasveitarinnar, Víkingi Jóhannssyni. Samsetning hennar er mismunandi eftir árum og oft er fullorðnum hljóðfæraleikurum bæjarins boðið að spila með. Stjórnandi er Martin Markvoll
Allar deildir lúðrasveitarinnar æfa í sal tónlistarskólans. Tónleikar eru jafnan tvennir á ári,haust og vor, og eru yfirleitt haldnir í Stykkishólmskirkju sem er mjög gott tónleikahús.
Lúðrasveitin hélt upp á 70 ára afmæli sitt árið 2014 og var þá gefinn út sérstakur afmælisvefur. Árið 2023 var efnið af afmælisvefnum fært yfir á nýjan vef Tónlistarskólans. Sjá hér