Tónfræði

Tónfræði eru mikilvægar hliðargreinar í tónlistarnámi. Þau efla hæfi nemenda til að lesa og skrifa tónlist og eykur skilning á tónlist og flutningi á henni.

Tónfræðunum er oft skipt í 3 meginflokka:

  1. Tónfræði, sem gengur út á að læra um nótur og tákn sem notuð eru í tónlist.
  2. Tónheyrn, sem felur í sér þjálfun í að lesa það sem skrifað er og skrifa það sem við heyrum.
  3. Hlustun og saga, en þá er farið yfir þróun tónlistar í gegnum ár og aldir og helstu tónskáld tónlistarsögunnar kynnt. Með því að hlusta á fjölbreytta tónlist læra nemendur að þekkja ólíka tónlist og hljóðfæri.

Tónfræðagreinar eru kenndar í skólanum eftir því sem kostur er og reynt er að láta tónfræðanámið haldast í hendur við hljóðfæranám. Á fyrstu stigum er flokkunum þremur blandað saman, en þegar lengra er komið í tónlistarnámi fær hver flokkur aukinn tíma og gjarnan kenndur í sérstökum tímum.