Píanó og orgel

Kennt hefur verið á píanó frá því skólinn var stofnaður. Skólin á núna þrjá flygla, þar af einn lítinn sem er áratugagamall. Einnig á skólinn tvö stofupíanó og nokkur hljómborð.

Með góðu samstarfi við kirkjuna og organista hennar skapast nú einnig möguleikar á að kenna á pípuorgel, en æskilegt er að þeir sem læra á orgel hafi lært undirstöðu í píanóleik og lokið a.m.k. grunnprófi.

Hólmgeir S. Þórsteinsson og László Petö eru aðal píanókennarar skólans.