Laus er til umsóknar staða aðstoðarskólastjóra við Tónlistarskóla Stykkishólms.
Staðan skiptist á milli stjórnunarstarfa og kennslu. Skólinn er samrekinn með grunnskólanum. Staðan er 100% starf og felur í sér bæði stjórnun (50%) og kennslu (50%). Hlutfall stjórnunar og kennslu getur verið sveigjanlegt og tekið mið af hæfni og reynslu þess sem ráðinn verður, sem og þörfum skólans.
Tónlistarskólinn í Stykkishólmi er samrekinn með Grunnskóla Stykkishólms og gegnir mikilvægu hlutverki í menningar- og skólastarfi bæjarins.
Í skólanum starfar metnaðarfullt starfsfólk sem leggur áherslu á fagmennsku, samstarf og skapandi tónlistarstarf. Tónlistarskólinn sinnir fjölbreyttu, öflugu og mikilvægu starfi fyrir sveitarfélagið. Um 110 nemendur á öllum aldri stunda þar tónlistarnám.
Helstu verkefni
· Dagleg stjórnun tónlistarskólans í samvinnu við skólastjóra
· Skipulag kennslu og viðburða
· Samskipti við nemendur, foreldra og starfsfólk
· Þátttaka í stefnumótun og þróunarstarfi skólans
· Upplýsingagjöf
· Kennsla (t.d. gítar, tónmennt, tónfræði, söngur, kórstjórn)
· Fagleg forysta og starfsmannahald
Menntunar- og hæfniskröfur
· Tónlistarmenntun á háskólastigi
· Kennsluréttindi eða sambærileg menntun æskileg
· Reynsla af tónlistarkennslu
· Reynsla af stjórnun eða faglegri forystu æskileg.
· Skipulagshæfni, sjálfstæði og góð samskiptahæfni
· Áhugi á þróun tónlistarnáms og skapandi skólastarfi
· Þekking á skólastarfi
· Góð tölvukunnátta, tæknilæsi og innsýn í samfélagsmiðla
· Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
Í Tónlistarskólanum starfar metnaðarfullur hópur kennara sem leggur áherslu á fagmennsku, samstarf og skapandi tónlistarstarf. Starfið felur í sér fjölbreytt og skapandi verkefni í öflugu skólasamfélagi þar sem rík áhersla er lögð á samstarf, fagmennsku og jákvæðan starfsanda. Starfið veitir góð tækifæri til faglegs vaxtar og þróunar.
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningum. Umsóknarfrestur er til 22. apríl. og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. ágúst 2026.
Nánari upplýsingar veitir Þóra Margrét Birgisdóttir, skólastjóri grunn- og tónlistarskóla, í síma 433-8178 eða með tölvupósti.
Umsóknum ásamt fylgigögnum skal skilað í ráðningakerfi Alfred.is Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Skólinn áskilur sér rétt til að framlengja umsóknarfrest.
Um sveitarfélagið
Sveitarfélagið Stykkishólmur er á norðanverðu Snæfellsnesi og dregur nafn sitt af þéttbýlinu Stykkishólmi sem stendur við Breiðafjörð og er rómað fyrir einstaklega fallegt bæjarstæði. Um 1.350 manns búa í sveitafélaginu sem er innan við tveggja klukkustunda akstursfjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu.
Þjónustustig er gott í Stykkishólmi og státar bæjarfélagið af ríkulegu íþrótta- og tómstundastarfi fyrir fólk á öllum aldri og rótgrónum mennta- og menningarstofnunum. Alla helstu grunnþjónustu er að finna á svæðinu, m.a. leikskóla, grunnskóla, tónlistarskóla og framhaldsskóla, öflugt íþróttastarf, heilsugæslu, bókasafn, lágvöruverslun og margt fleira. Þá eru atvinnuvegir fjölbreyttir og samfélagið fjölskylduvænt. Blómleg ferðaþjónusta býður ótal skemmtilega afþreyingarmöguleika fyrir heimafólk sem og gesti. Í sveitarfélaginu er fjölskrúðug og falleg náttúra og gott mannlíf. Það eru spennandi tímar og mikil uppbygging fram undan í sveitarfélaginu. Aðstaða er fyrir störf óháð staðsetningu, t.d. fyrir maka.