Hátíðin stóð yfir 21.-25. júní, en við bættum við einum aukadegi að hátíðinni lokinni.
Með í ferðinni voru tveir nemendur úr Litlu Lúðró, fimm úr Gemlingasveitinni og 17 úr Stóru Lúðró og Víkingasveit.
32 systkini og foreldrar komu með og samtals fóru 56 manns með í ferðina.
Fyrir ferðina voru allir búnir að panta sér rauðan lúðrasveitarbol og flestir derhúfu í stil.
Sunnudagur
Við tókum rútu frá Stykkishólmi kl. 11:00 og vorum komin á Keflavíkurflugvöll um kl. 14.
Bílstjóri var Guðmundur Hjartarson. Flest okkar fóru með rútunni, en nokkrar fjölskyldur keyrðu á sínum bílum.
16:50-21:45 Flug með Icelandair frá Keflavík til Gautaborgar.
Flug til Gautaborgar en heim frá Kaupmannahöfn
Icelandair var besti kosturinn, en við ákvaðum að bæta við einn aukadag eftir hátiðinni. Til að ná því var ákveðið að fljúga heim frá Kastrup (Kaupmannahöfn). Við bókuðum rútu sem tók okkur frá Gautaborg til Kastrup. Við lentum seint um kvöld í Gautaborg og fengum rútu sem keyrði okkur beint á hótelið. Roger, framkvæmdastjóri GMF, tók á móti okkur og var búinn að biðja eldhúsið um að geyma kvöldmat handa okkur (norskar pitsur!).
Gisting
Hátíðarhótelið var Scandic Opalen Göteborg. Við gistuðum öll þar. Hótelið var miðsvæðis og í göngufæri frá æfingasvæði, mötuneyti og skólanum þar sem flestar lúðrasveitir gistu. Hinsvegar var svolítið labb niður í miðbæ þar sem við spiluðum í bátnum „Party-paddan“ og í göngugötunni Kopparmärra. Það tók um 20 mínútur að labba þangað, en GMF var með sendibíl fyrir hljóðfærin.
Mánudagur
Fyrir hádegi var „workshop“ (samspil) þar sem allir nemendur úr Stóru Lúðró og Víkingasveitinni tóku þátt. Nemendur á miðstigi voru í miðhópnum og nemendur á unglingastigi og framhaldsskóla voru í elsta hópnum. Kennaranir voru sex félagar úr Göteborg Brass Quintet og byrjuðu þeir á að spila lag fyrir okkur sem við fengum svo að læra eftir eyranu. Á meðan fóru nemendur úr Litlu Lúðró og Gemlingasveit, ásamt foreldrum og systkinum í Trädgårdsforeningin, fallegur garður nálægt miðbænum. Flestir löbbuðu síðan yfir í Haga ásamt mörgum af eldri krökkunum. Eftir hádegi var tónleikakeppni. Sjö lúðrasveitir tóku þátt, en okkur gafst ekki mikill tíma til að hlusta á aðrar sveitir. Við kepptum í annari deild og seinna í vikunni var tilkynnt að við lentum í 3ja sæti og fórum heim með bikar, viðurkenningaskjal og flott nótnastatif í verðlaun.
Þriðjudagur
Workshop fyrir hádegi eins og á mánudag (nýtt lag). Á meðan fóru yngsti nemendur og fjölskyldur þeirra í Slottskogen þar sem er skemmtilegur leikvöllur og dýragarður. Restin af hópnum kom þangað eftir workshop. Til að komast þangað þurfti að taka sporvagn (og strætó vegna framkvæmda á sporvagnsleiðinni). Ferðin tók um 30 mínútur. Hluti af hópnum lenti svo í vandræðum með að komast heim og endaði á að taka Uber, en hægt var að taka sporvagninn beint frá garðinum (sem við vitum núna). Eftir hádegi fórum við í siglingu og spiluðum um borð í Party-paddan. Þetta var opinn prammi sem keyrði hægt um síki borgarinnar á meðan við spiluðum fyrir fólk sem var í göngutúr eða sat á veitingastöðum.
Um kvöldið var diskó, en bara örfáir hólmarar fóru þangað. Stjórn foreldrafélagsins fóru í „ledarutflykt“ (siglingu) á meðan.
Miðvikudagur
Um morguninn var workshop, samspil, þar sem hver hópur kláraði að læra tvö lög, þar af átti að spila annað lagið með öllum þátttökendum á lokatónleikunum. Á meðan fóru yngstu nemendurnir og fjölskyldur þeirra í nátturu- og vísindasafnið Universeum, þangað var um 10 mínútna ganga. Eftir hádegi fórum við í skrúðgöngu sem byrjaði í Trädgårdsforeningen og fór um miðbæinn áður en hún endaði á sama stað. Skrúðgangan tók um 45 mínútur og heppnaðist mjög vel. Um kvöldið voru lokatónleikar hjá Ullevi Stadium. Þar voru samspilslögin sem voru æfð um morgnana flutt og Bence tók á móti verðlaunum fyrir okkar hönd.
Fimmtudagur
Þetta var dagurinn sem flestar aðrar sveitir fóru heim, en við hlökkuðum til að eyða meirihlutanum af deginum í Liseberg-skemmtigarðinum. Fyrst fengum við okkur hádegishlaðborð á Liseberg Grand Curiosa hótelinu og síðan voru flestir í Liseberg þangað til garðurinn lokaði kl. 22:00.
Föstudagur
08:00 kom rúta sem keyrði okkur til Kastrup, Kaupmannahöfn. Flugið fór kl. 16:55 og var lent á Íslandi kl. 18:10. Þar beið Guðmundur eftir okkur með rútuna og keyrði okkur heim til Stykkishólms.
Ferðaskyrsla má lesa í heild sinni í Ársskyrslu 2025-2026.