Nýr söngkennari

Við fáum til okkar nýjan söngkennara næsta haust. Friðrik S. Kristinsson er fæddur í Stykkishólmi og er nú fluttur hingað aftur. Hann er lærður söngvari, söngkennari og kórstjóri. Lengst hefur hann stjórnað Karlakór Reykjavíkur.
Friðrik getur boðið upp á fjölbreytta söngkennslu fyrir börn frá 9 ára aldri, unglinga og fullorðna. Hægt er að læra bæði klassisk og rytmísk söng. Þeir sem vilja geta líka tekið stigspróf og lært tónfræði.
 
Hér má sækja um: