Tónlistarskólinn í Stykkishólmi vill vekja athygli á því að Friðrik S. Kristinsson, fæddur í Stykkishólmi er fluttur hingað aftur og tekur nú við sem söngkennari tónlistarskólans.
Hann er lærður söngvari, söngkennari og kórstjóri. Lengst af hefur hann stjórnað og starfað hjá Karlakór Reykjavíkur þar sem hann mun eiga starfslok 1. janúar n. k. eftir 38 farsæl ár sem söngstjóri kórsins.
Friðrik býður upp á fjölbreytta kennslu í bæði klassískum og rytmískum söng fyrir börn frá 9 ára aldri, unglinga og fullorðna.
Auk þess hefur Friðrik mikinn áhuga á að vinna með og þjálfa kórsöngvara, búa til litla sönghópa sem og stærri.
Við hvetjum alla sem hafa áhuga til að sækja um nám hér:
https://tonlistarskolinn.stykkisholmur.is/is/thjonusta/nam-og/umsokn-um-skolavist