Öskudagurinn verður á morgun, 18.febrúar og verður tónlistarskólinn opinn eins og venjulega. Allir nemendur eru því velkomnir í sína tíma. Við vitum þó að margir vilja taka þátt í öskudagsgöngunni, syngja og hafa gaman og það er auðvitað í lagi. Við hvetjum því nemendur og fjölskyldur til að velja það sem öllum hentar best þennan dag. Hvort sem það er að mæta í tíma, fara í gönguna eða bæði. Gleðilegan öskudag á morgun!