Skapandi deildin stækkar

Það er helst að frétta frá skapandi deild að við erum eftir miklar pælingar búin að ákveða að opna hana fyrir fleiri nemendur og gera hana gjaldfrjálsa.

Þrír hópar æfa nú saman í samspili. Þar er hugmyndin að fjölga þátttakendum og koma þannig fleiri nemendum í samspil. Það er mjög mikilvægur þáttur í tónlistarnámi og eitthvað sem við höfum ekki getað sinnt eins vel og við vildum hingað til. Við getum þó ekki sett alla í samspil, enda ekki til kennslukvóti fyrir það. En þetta er skref í rétta átt teljum við.