Tónfundir og opið hús í Tónlistarskólanum | 11.–13. maí

Dagana 11.–13. maí verða haldnir tónfundir í Tónlistarskólanum.


Nemendur fá miða með sér heim í þessari viku þar sem fram kemur hvenær hver nemandi á að spila.

 

Miðvikudaginn 13. maí kl. 14:00–17:00 verðum við jafnframt með opið hús.


Allir eru hjartanlega velkomnir í notalega heimsókn þar sem boðið verður upp á vöflur, kaffi, djús og gott spjall.

Við hlökkum til að sjá sem flesta alla þessa daga