Velkomin í nýtt skólaár hjá Tónlistarskólanum í Stykkishólmi

Við bjóðum alla nýja og gamla nemendur hjartanlega velkomna í Tónlistarskólann í Stykkishólmi og við hlökkum til að hefja saman enn eitt spennandi og viðburðaríkt skólaár. Með nýju skólaári tekur Valbjörn Snær við sem aðstoðarskólastjóri sem er afar ánægjulegt en hann mun einnig halda kennslu áfram.

Kennarar skólans eru þessa dagana önnum kafnir við undirbúning haustannarinnar og vinna nú að því að koma nemendum inn í stundatöflur. Nemendur og forráðamenn munu því heyra frá kennurum sínum á næstu dögum varðandi kennslutíma og aðrar mikilvægar upplýsingar fyrir upphaf annarinnar.

Við erum ótrúlega spennt fyrir komandi skólaári og hlökkum til að fylla húsið af tónlist, gleði, sköpun og góðum samverustundum! 🎶🍂

Kveðja,
Starfsfólk Tónlistarskólans í Stykkishólmi